Skrauthýsið sem ekki varð á Skólavörðuholti
Skrauthýsið sem Einar Jónsson teiknaði 1916 fyrir Hallgrím Kristinsson. Tilgátuteikning.
Hér segir frá hugmynd Hallgríms Kristinssonar fyrsta forstjóra Sambands íslenskra samvinnufélaga og Einars Jónssonar myndhöggvara frá 1916 um einbýlishús, sannkallað skrauthýsi á Skólavörðuholti við hliðina á Hnitbjörg, safnhúsi Einars. Húsið var hugsað fyrir Hallgrím og fjölskyldu hans.
Eins og margir vita var Hnitbjörg, listasafn Einars Jónssonar myndhöggvara á Skólavörðuholti, gert eftir frumdráttum listamannsins sjálfs sem fékk svo Einar Erlendsson húsameistara til að snurfusa teikningarnar og endurbæta. Húsið var fullgert árið 1923. Upphaflega hafði Guðjón Samúelsson gert drög að verkinu en hvarf frá því vegna ósamkomulags við Einar.
Hnitbjörg er ekki eina húsið sem Einar Jónsson teiknaði. Árið 1916 bað vinur hans úr guðspekihreyfingunni, Hallgrímur Kristinsson (1876-1923) kaupfélagsstjóri á Akureyri og síðar fyrsti forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga, hann að teikna fyrir sig einbýlishús í Reykjavík. Hann hugðist þá setjast að í bænum. Langaði hann til að það yrði skammt frá Hnitbjörg sem þá var á teikniborðinu. Einar Jónsson gerði frumdrög sem varðveist hafa meðal skjala Hallgríms í Héraðsskjalasafninu á Akureyri, en hafa ekki áður verið birt svo kunnugt sé. Einar kallaði drögin reyndar „fljótateikningar“.
Í bréfi til Hallgríms 19. nóvember 1916 hafði Einar eftir nafna sínum Erlendssyni að byggingarkostnaður gæti orðið allt að 50 þúsund krónur að þávirði. Hefði það þá orðið eitt dýrasta einbýlishús í Reykjavík. Bætir Einar svo við: „En húsið gæti orðið fallegt – og skal verða fallegt í líkingu við þetta sem höfum hugsað okkur.“
En húsið reis aldrei, eitthvað breyttist hjá Hallgrími sem nokkru síðar keypti stórt timburhús við Þingholtsstræti fyrir sig og fjölskylduna. Hann dó svo árið 1923, langt fyrir aldur fram, öllum harmdauði, því hann þótti einstaklega geðþekkur maður og var mikill dugnaðarforkur og framfarasinni.
Ég birti hér til gamans teikningar Einars Jónssonar - og jafnframt tilgátuteikningu að útliti hússins sem unnin var með gervigreindarverkfæri. Gefur hún vísbendingu um hve einstakt skrauthýsi hefði risið á Skólavörðuholti við hlð Hnitbjargar ef Hallgrímur hefði ákveðið að ráðast í verkið. Gera ber þó skýran greinarmun á þeirri litmynd sem hér birtist og raunverulegum teikningum Einars sem hér fylgja.
Ég vek athygli á skýringum Einars við teikningarnar þar sem m.a. kemur fram að hann sá fyrir sér garð á þaki hússins með tveimur myndastyttum. Á neðri hæð hússins áttu að vera mósaik-gluggar.
Í fyrrnefndu bréfi Einars með teikningunum segir hann að fátt myndi gleðja sig meira en að þeir Hallgrímur gætu orðið nábúar á Skólavörðuholti. Kveðst hann hafa stuðst við grundplan af húsinu sem Hallgrímur sendi honum og segir að sér hafi litist sérlega vel á það en leyft sér nokkrar smábreytingar. „T.a.m. turnana á þeim mótsettu hornum þar sem gengið er upp og ofan. Jeg held fyrir mitt leyti að húsið geti orðið mjög snoturt svona, en þó vil vil jeg breyta ennþá ýmsu, einkanlega við suðurhliðina eða bakhliðina. Sömuleiðis vildi jeg hafa kjallarann - eða þá neðri hæð hærri – en jeg hef teiknað það hjer. Jeg lýsi því ekki neitt hjer, en hef gert skýringar nokkrar á teikningarnar. Þó vil ég nefna dálítið það sem jeg yrði „stoltastur“ af, ef í framkvæmd kæmi, það er þakgarðurinn þar sem jeg hef hugsað mjer virkilegan garð með plöntum og trjám, og sem verður í forsælu af hinum byggingunum ásamt milligaungunum. Sjerstaklega yrði garður þessi einkennilega fallegur frá uppgángsturninum sjeð, þegar forgarðurinn – með innganginum til aðalgarðsins – og hvítu kalksteins styttunum sitthvorumegin sjást beint frammundan. Þarna uppi meðal rósa og runna held jeg að gæti orðið töluvert ánægjulegt – einkanlega þegar útsýnin er svo fögur sem hún er þarna uppi á holtinu – og svo er maður þarna svo langt frá mörgu öðru óþægilegu er maður vill hvíla sig og njóta friðar og sinna eigin hugsana. Þennan „skýagarð“ sem jeg kalla það – væri eins hægt að búa til hjer heima sem erlendis. Svona garður hefur altaf verið eitt af því ánægjulegasta jeg hefði getað óskað mjer. Nú held jeg að öðrum mundi sýnast líkt hvað þetta snertir, og þótt ég fái það ekki svo tilbúið óska jeg að aðrir geti haft þá ánægju.“
Síðar í bréfinu segir Einar: „Annars hef jeg hugsað mjer húsið líkt sem teikningin sýnir. Jeg er ánægðastur með „karnapana“ [útskotin] og að sumu leyti sívalaturninn. Aðeins hef ég sýnt á einni teikningunni hvernig jeg hef hugsað mjer neðri hæðina – en kjallarinn verður að bíða þangað til nær verður ákveðið, og aðrar teikningar – gleggri en þessar – verða tilbúnar. Þessar eru sem sagt aðeins til að sýna yður hugmynd mína en sem þjer auðvitað breytið eftir eigin vild.“
Greint er frá teikningum Einars fyrir Hallgrím í ævisögu þess síðarnefnda (Páll H. Jónsson: Úr Djúpadal að Arnarhóli. Sagan um Hallgrím Kristinsson (1976), bls. 247-248) en engar myndir af uppdrættinum er þar að finna.
Á einum stað ævisögunni er vitnað í bréf sem Hallgrímur ritaði konu sinni Maríu Jónsdóttur, sem enn bjó þá á jörð þeirra Reykhúsum í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði, síðla í september 1916: Við [Vilhelm] Knudsen [kjötkaupmaður á Akureyri] og Jónas frá Hriflu erum stundum að ganga um [Reykjavík] og litast um eftir góðum stað, sem ætti að verða framtíðarheimili okkar. Þykjumst við hafa fundið hann, og vildi eg óska að eg ætti eftir að lifa þá stund að eg gæti leitt þig og börnin inn í þau húsakynni og umhverfi sem þið gætuð lifað í og við glöð og farsæl.“
Staðurinn sem vinir Hallgríms, Knudsen og Jónas frá Hriflu, hjálpuðu honum að finna var Skólavörðuholtið, „rétt við hliðina á húsi því, sem nú er byrjað að byggja fyrir listasafn Einars Jónssonar og hann einnig á að hafa íbúð í. Á þessum stað er, eins og þú þekkir eitthvert hið fegursta útsýni sem getur að líta hér heima á fróni,“ skrifar Hallgrímur í öðru bréfi til frú Maríu, að þessu sinni frá Kaupmannahöfn 28. október 1916.
Eins og kunnugt er komu síðar fram mikilúðlegar hugmyndir um að reisa á Skólavörðuholti svokallaða „háborg íslenskrar menningar“. Það var árið 1924 og er alveg ótengt áformum Hallgríms og Einars Jónssonar um skrauthýsi fyrir fjölskyldu Hallgríms við hlið safnhússins Hnitbjargar.
Teikningar Einars Jónssonar sem hér fara á eftir skýra sig sjálfar.