Ný útgáfa Thorsaranna
Bók mín Thorsararnir, sem kom út 2005, er væntanleg í nýrri útgáfu í haust. Bókin er farin í prentun. Útgefandi er Ugla. Rúm 20 ár eru frá upphaflegu útgáfunni, en bókin hefur verið ófáanleg um árabil. Hún fékk mjög góðar viðtökur og dóma fyrir jólin 2005, þrjár prentanir komu á markað og svo kiljuútgáfa snemma árs 2006. Þessi útgáfa er byggð á frumútgáfunni sem aldrei náði í verslanir og geymir allt það efni sem í henni var að finna. Hér má sjá kápu nýju útgáfunnar.